Niðurstöður aðalfundar 2026
Aðalfundur Hagsmunasamtaka heimilanna 2026 var haldinn 19. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn sem hefur nú skipt með sér verkum og er skipuð þannig:
- Guðmundur Ásgeirsson formaður
- Sigríður Örlygsdóttir varaformaður
- Jónas Yngvi Ásgrímsson gjaldkeri
- Hafþór Ólafsson ritari
- Guðrún Hulda Ólafsdóttir meðstjórnandi
Varamenn:
- Guðrún Bryndís Harðardóttir
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir
- Úlfhildur Elín Guðmundsdóttir
Aðalfundurinn samþykkti að félagsgjöld 2026 verði óbreytt frá fyrra ári 5.900 kr.
Baldur Garðarsson og Sigfríð Gerður Hallgrímsdóttir voru kjörin skoðunarmenn reikninga.
Aðalfundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun:
Ríkisstjórnin hefur boðað hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda um næstu áramót og kallar það “fyrsta skref að afnámi verðtryggingar”. Vissulega er skynsamlegt að greiða verðtryggð lán sem hraðast upp en að þvinga neytendur til þess er ekki skref að afnámi verðtryggingar.
Fyrsta skrefið að afnámi verðtryggingar lána til neytenda væri að stöðva útbreiðslu þeirra og til þess þarf aðeins að bæta svohljóðandi málsgrein við 14. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001:
„Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. er óheimilt að verðtryggja neytendalán og fasteignalán til neytenda.”
Frumvarp þessa efnis hefur margoft verið lagt fram á Alþingi og Hagsmunasamtök heimilanna skora nú enn og aftur á ríkisstjórn Íslands að taka þetta skref að afnámi verðtryggingar strax!
Jafnframt skora Hagsmunasamtök heimilanna á ríkisstjórn Íslands að beita eigendavaldi sínu yfir stærsta banka landsins til að stuðla að hagstæðari húsnæðislánakjörum fyrir heimilin og heilbrigðari viðskiptaháttum á fjármálamarkaði fyrir neytendur.
Jafnframt hefur stjórn samtakanna samþykkt eftirfarandi stefnuskrá óbreytta frá fyrra ári:
- Að réttur allra til heimilis sé virtur sem grundvallarmannréttindi, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins.
- Að verðtrygging lána til neytenda verði afnumin enda hækkar hún lán, leigu, vaxtastig, vöruverð og framfærslukostnað allra heimila.
- Að tryggt verði að heimilin geti treyst því að forsendur greiðslumats standist þannig að greiðslubyrði húsnæðislána hækki ekki umfram greiðslugetu þeirra.
- Að neytendum verði gert kleift að breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð lán án þess að greiðslumat eða aðrar hindranir standi í vegi fyrir því.
- Að fundið verði út hvað kostar að lifa hófsömu mannsæmandi lífi og framfærsla verði tryggð til samræmis við það.
- Að gerð verði Rannsóknarskýrsla heimilanna um þær aðgerðir sem ráðist var í eftir bankaránið 2008 og afleiðingar þeirra fyrir heimilin.

